Nú er liðinn svolítill tími frá því ég reit hér síðast, og þykir því tími til kominn!
Reyndar verður ekki margt ritað núna, enda stoppa ég stutt, bara að minna á að ég er enn á lífi og nenni að bulla eitthvað hérna þegar ég er á netinu.
Annars eru prófin núna búin, meira að segja sjúkraprófin (þó ég hafi ekki verið í neinu sjúkraprófi) og lauk ég mínum prófum á miðvikudaginn síðasta, held að allt hafi gengið ágætlega upp...
Svo er prófsýningardagurinn mikli á miðvikudaginn næsta, þá fær maður að vita hvort maður hafi náð eða fallið og hægt er að skoða prófin og setja út á yfirferð prófsins ef því er að skipta!
Svo komu gleðifréttir utan úr heimi í gær, Ameríkönunum tókst loksins að handsama Saddam fyrrum Írakseinvald. Hann lá í leyni, í nokkurskonar gröf held ég, þeir kölluðu þetta reyndar klefa, svona feluklefa.
En jæja, ekki meira um það núna, ég ætla að drífa mig heim!
skrifað af Andri klukkan [9:42 AM]