Jæja, þá eru prófin byrjuð og fyrri prófavikan liðin. Svo þar að auki 3 af 4 þeim prófa sem ég þarf að taka.
Nú liggur maður svona sæmilega léttur yfir bókunum samt án þess að stressa sig of mikið á heimalærdómnum, það er alls ekki gott að vera svakalega stressaður fyrir prófin.
Svo eru aðventutónleikar um næstu helgi í Selfosskirkju, þar mætir maður að sjálfsögðu í kórbúningnum eins og síðastliðin 3 ár, þetta er fínasta skemmtun og ekki skemmir að F.Su. kórinn er síðastur á laugardeginum og skipar þann heiðurs sess að enda tónleikana.
En svo hefur maður gert margt og mikið sem maður gerir kannski ekki venjulega, þar síðustu helgi (fyrstu helgi í aðventu) fór ég á Sólheima og tók þar þátt í aðventugarði, skemmtileg athöfn sem kemur manni í jólaskap. Svo fór ég um kvöldið sama dag á aðventusamkomu í Hveragerðiskirkju. Við höfum ekki fleiri orð um það nema þægileg sæti, ég í kirkju, maður að halda ræðu = ég dottaði svona ca. 20 sinnum á þessum rétt rúma klukkutíma sem ég var í kirkjunni. Pottþétt uppskrift ef manni gengur illa að sofna.
En þetta læt ég nægja í bili, hver veit hvað kemur upp næst?
skrifað af Andri klukkan [11:13 AM]