Þá er viðburðarík síðasta vika liðin. Gettu Betur, vísnakvöld, vinnuhelgi og fleira.
Nú er komin ný vika, SÍÐASTA SKÓLAVIKAN!!! Þannig að nú er að klára allt sem er óklárað í áföngum og skila inn og þetta venjulega þegar ein vika er eftir af kennslu. Svo hefjast prófin á mánudaginn, reyndar fer ég ekki fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku og í 3 próf í heildina :)
Svo á maður eftir að hlýða á þrjá fyrirlestra í sögu, fara betur yfir heildarskil í töl113, halda áfram í upprifjun í stæ313, eins í eðl103 (og æfingaprófið í vikunni) og kortaverkefnið í jar203 auk síðasta prófsins á fimmtudaginn næsta.
Svo sleppti ég að vísu að fara á björgunarsveitarfund í gærkvöldi, þó svo að mig hafi langað mikið að fara. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, var með fyrirlestur um það sem er að gerast hér á Suðurlandinu og hvort eða öllu heldur hvenær við eigum von á gosum, t.d. í Kötlu (sem verður fyrr en síðar).
En þetta er nóg í bili, það er ótrúlegt hvað maður getur látið dæluna ganga...
skrifað af Andri klukkan [8:42 AM]