Flautið

[ mánudagur, apríl 26, 2004 ]

 
Já, eitthvað varð ég var við það að menn náðu ekki nýja blogginu, en það er blog.central.is/snilli, og breyttist reyndar frá síðasta pósti...
svona er þetta :)
skrifað af Andri klukkan [3:49 PM]


--------------------------

[ föstudagur, febrúar 13, 2004 ]

 
var aðeins að bæta við bloggið, ég er kominn með annað sem er kannski pííínulítið þægilegra (þegar það er virkt) enda á íslensku... á www.folk.is.
jæja, læt þetta nægja frá mér í bili samt sem áður...
skrifað af Andri klukkan [11:29 AM]


--------------------------

[ föstudagur, janúar 23, 2004 ]

 
Línurnar eru að skýrast, núna veit maður hversu mikið maður þarf að leggja á sig þessa önnina!
Ekki hjálpar svo að vera að fara á vikulangt námskeið og missa úr 5 daga í skólanum... reyndar eru þeir einungis 2 og hálfur þar sem ég kem til með að missa af Kátu dögunum og Flóafárinu... en ég leiði það hjá mér, tek Fyrstu hjálp í óbyggðum framyfir, hún kemur sér betur seinna meir (þó svo að ég sé að sleppa heljarinnar skemmtun...)!
En hvað um það, það kemur dagur eftir þennan dag og svo framvegis... maður á ekki að láta undan...
skrifað af Andri klukkan [11:52 AM]


--------------------------

[ þriðjudagur, janúar 13, 2004 ]

 
Jæja, nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka og þó... nú er komið það herrans ár 2004 og vonandi bætist maður á þessu ári. Maður ætlar að minnsta kosti að taka sig á og vera duglegri, eins og maður segir alltaf, en í þetta skiptið þarf maður þess enda byrjar maður í nýjum skóla í haust, Háskóla Íslands (ef allt gengur eftir...).
Næstu dagar fara í skipulagningu og í að telja það eftir sér að læra heima, setjast niður við skrifborðið í herberginu mínu og hefjast handa, auk þess að maður hefur margt annað í pokahorninu sem einnig þarf að huga að.
Svo er F.Su. hafinn að nýju og kennslan komin á fullt aftur... með tilheyrandi streði og heimalærdómi...!
En ég læt þetta nægja í bili, þarf að klára þýskutímann hjá Hannesi :p
skrifað af Andri klukkan [3:38 PM]


--------------------------

[ mánudagur, desember 15, 2003 ]

 
Nú er liðinn svolítill tími frá því ég reit hér síðast, og þykir því tími til kominn!
Reyndar verður ekki margt ritað núna, enda stoppa ég stutt, bara að minna á að ég er enn á lífi og nenni að bulla eitthvað hérna þegar ég er á netinu.
Annars eru prófin núna búin, meira að segja sjúkraprófin (þó ég hafi ekki verið í neinu sjúkraprófi) og lauk ég mínum prófum á miðvikudaginn síðasta, held að allt hafi gengið ágætlega upp...
Svo er prófsýningardagurinn mikli á miðvikudaginn næsta, þá fær maður að vita hvort maður hafi náð eða fallið og hægt er að skoða prófin og setja út á yfirferð prófsins ef því er að skipta!
Svo komu gleðifréttir utan úr heimi í gær, Ameríkönunum tókst loksins að handsama Saddam fyrrum Írakseinvald. Hann lá í leyni, í nokkurskonar gröf held ég, þeir kölluðu þetta reyndar klefa, svona feluklefa.
En jæja, ekki meira um það núna, ég ætla að drífa mig heim!
skrifað af Andri klukkan [9:42 AM]


--------------------------

[ mánudagur, desember 08, 2003 ]

 



What Famous Leader Are You?



Ekki veit ég hvers vegna þessi útkoma kom út? Hver veit...
skrifað af Andri klukkan [11:23 AM]


--------------------------

 
Jæja, þá eru prófin byrjuð og fyrri prófavikan liðin. Svo þar að auki 3 af 4 þeim prófa sem ég þarf að taka.
Nú liggur maður svona sæmilega léttur yfir bókunum samt án þess að stressa sig of mikið á heimalærdómnum, það er alls ekki gott að vera svakalega stressaður fyrir prófin.
Svo eru aðventutónleikar um næstu helgi í Selfosskirkju, þar mætir maður að sjálfsögðu í kórbúningnum eins og síðastliðin 3 ár, þetta er fínasta skemmtun og ekki skemmir að F.Su. kórinn er síðastur á laugardeginum og skipar þann heiðurs sess að enda tónleikana.
En svo hefur maður gert margt og mikið sem maður gerir kannski ekki venjulega, þar síðustu helgi (fyrstu helgi í aðventu) fór ég á Sólheima og tók þar þátt í aðventugarði, skemmtileg athöfn sem kemur manni í jólaskap. Svo fór ég um kvöldið sama dag á aðventusamkomu í Hveragerðiskirkju. Við höfum ekki fleiri orð um það nema þægileg sæti, ég í kirkju, maður að halda ræðu = ég dottaði svona ca. 20 sinnum á þessum rétt rúma klukkutíma sem ég var í kirkjunni. Pottþétt uppskrift ef manni gengur illa að sofna.
En þetta læt ég nægja í bili, hver veit hvað kemur upp næst?
skrifað af Andri klukkan [11:13 AM]


--------------------------

[ þriðjudagur, nóvember 25, 2003 ]

 
Þá er viðburðarík síðasta vika liðin. Gettu Betur, vísnakvöld, vinnuhelgi og fleira.
Nú er komin ný vika, SÍÐASTA SKÓLAVIKAN!!! Þannig að nú er að klára allt sem er óklárað í áföngum og skila inn og þetta venjulega þegar ein vika er eftir af kennslu. Svo hefjast prófin á mánudaginn, reyndar fer ég ekki fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku og í 3 próf í heildina :)
Svo á maður eftir að hlýða á þrjá fyrirlestra í sögu, fara betur yfir heildarskil í töl113, halda áfram í upprifjun í stæ313, eins í eðl103 (og æfingaprófið í vikunni) og kortaverkefnið í jar203 auk síðasta prófsins á fimmtudaginn næsta.
Svo sleppti ég að vísu að fara á björgunarsveitarfund í gærkvöldi, þó svo að mig hafi langað mikið að fara. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, var með fyrirlestur um það sem er að gerast hér á Suðurlandinu og hvort eða öllu heldur hvenær við eigum von á gosum, t.d. í Kötlu (sem verður fyrr en síðar).
En þetta er nóg í bili, það er ótrúlegt hvað maður getur látið dæluna ganga...
skrifað af Andri klukkan [8:42 AM]


--------------------------